Flautað til sumars...

18.07.2007 22:48:35 / hafdis

Enn af spileríi...

Það er verða langt síðan það kom eitthvað hér inn síðast og skrifast það einkum á miklar annir og þó nokkra þreytu í herbúðum dúósins enda mikið drifið á daga dúósins síðastliðnar vikur. Þann 3. júlí síðastliðinn var seinasta heimsókn dúósins í flokknum dvalarheimili aldraðra/sjúkrahús en þær voru alls sjö. Tókust allar heimsóknirnar vel og var okkur jafnan afar vel tekið. Tónleikarnir í Gljúfrasteini þann 8. júlí voru mjög skemmtilegir og ágætlega sóttir og mikill heiður fyrir dúóið að fá að spila í stofu skáldsins. Föstudaginn 13. júlí, þann happadag, kom dúóið síðan fram á Kjarvalstöðum og í verslun Sævars Karls á þriðja og síðasta Föstudagsfiðrildi Hins hússins. Tókust þeir atburðir einnig með miklum ágætum. Í þessari viku höfum við heimsótt fjóra af leikskólum borgarinnar, en auk þess spiluðum við fyrir 5-8 ára börn í sumarskóla Ísakskóla í síðustu viku. Þemað var fuglar og spiluðum við í bland úr klassískum verkum, s.s. Svarta skógarþrestinum eftir Messiaen og Svaninn eftir Saint-Saëns, og sönglög sem börnin þekktu eins og Sá ég spóa og Krummi svaf í klettagjá. Síðan spiluðum við fuglahljóð og sýndum myndir. Krakkarnir voru upp til hópa áhugasamir og duglegir að hlusta og kom margt skemmtilegt fram í þessum heimsóknum!

Aðeins af "stofuspili" dúósins. Við buðum upp á þá nýjung að bjóða Reykvíkingum ókeypis tónleika heim í stofu. Þetta hefur mælst vel fyrir og hlotið þó nokkra kynningu og viðbrögð. Skemmst er þó frá því að segja að við höfum enn sem komið er aðeins heimsótt eitt reykvískt heimili, en tókst sá viðburður að okkar mati með eindæmum vel og er að okkar mati eitt af því sem stendur hvað hæst upp úr hvað af er sumri. Okkur var einstaklega vel tekið og var bæði hlýlegt, skemmtilegt og gefandi að geta fært fólki tónlistina heim í stofu. Ekki er öll von úti enn fyrir þá sem vilja skoða þennan möguleika og hvetjum við fólk til að hafa samband og kanna málið (s. 696-5298). Tilefnið má sem fyrr segir vera stórt eða lítið, allt eða ekkert, en skilyrðið er að þetta sé í heimahúsi.

Framundan hjá dúóinu er Vængjasláttur Hins hússins eða uppskeruhátíð skapandi sumarhópa sem fram fer í Tjarnarsal Ráðhússins kl. 20 annað kvöld (fimmtudag). Má þar búast við þó nokkru húllumhæi. Strax í bítið á föstudaginn verður svo flogið norður í land þar sem dúóið heldur hádegistónleika í Ketilhúsinu á Akureyri kl. 12:00 sem hluti af dagskrá Listasumars. Hvetjum við Norðlendinga til að fjölmenna á tónleikana og hafa með sér þúsund kall fyrir ca. 45 mínútna langri skemmtuninni. Verkin sem við komum til með að flytja á tónleikunum eru fjölbreytt og aðgengileg. Þemað er sem fyrr franskt en tónskáldin sem verða í smásjánni eru Leclair, Chopin, Messiaen, Gaubert og Sancan.

En við förum að segja þetta gott í bili en minnum jafnframt á loka-styrktartónleika dúósins hjá Hinu húsinu sem verða haldnir helgina 28./29. júlí og verða auglýstir hér í næstu viku. Við hvetjum fólk til að fylgjast vel með því og mæta og styrkja gott málefni.

Bless í bili,

Para-Dís

Sæunn frænka ;) skrifaði
Við Salome mættum á vængjasláttinn í gær og kunnum vel að meta að fá að heyra ykkur spila. það er verst að við eigum ekki heima í Reykjavík og eigum ekki píanó...

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.