Góðan dag og gleðilega þjóðhátíð!
Dúóið para-Dís er komið til landsins og sumarvertíðin hafin.
Dúóið er skipað tveimur ungum hljóðfæraleikurum, þeim Hafdísi
Vigfúsdóttur flautuleikara og Kristjáni Karli Bragasyni
píanóleikara. Við stundum bæði framhaldsnám í tónlist í
París.
Leikar hófust í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag þar sem við spiluðum
létt frönsk sumarlög fyrir landann. Þetta var okkar fyrsta verkefni
í sumar sem skapandi sumarhópur á vegum Hins hússins. Undanfarnar
vikur hafa farið í skipulagningu verkefnis okkar sem við nefnum
"Tónaregn í Reykjavík". Verkefnið er fimmþætt og hefur að að
markmiði að ná til breiðs hóps hlustenda. Við komum til með að
spila á dvalarheimilum aldraðra og sjúkrahúsum; leikskólum,
halda opinbera tónleika í kirkjum og listasöfnum; spila í
heimahúsum (nánari uppl. í síma 696-5298 og 864-0010) sem
og að halda styrktartónleika. Ókeypis aðgangur er á alla viðburði
okkar á vegum Hins hússins í sumar, fyrir utan styrktartónleikana
þar sem féð sem safnast rennur ósnert til styrktarsamtakanna (nánar
auglýst síðar). En para-Dís verður á fleiri stöðum en Hinu húsinu í
sumar og mun einnig halda tónleika í stofutónleikaröð Gljúfrasteins
- húsi Halldórs Laxness, Listasumri á Akureyri, sumartónleikaröð
Stykkishólmskirkju og Listasafns Sigurjóns. Við hvetjum ykkur til
að fylgjast með okkur hérna á síðunni í sumar og kíkja á tónleika.
Þema sumarsins er frönsk tónlist og við lofum léttum og sumarlegum
tónleikum víðs vegar um landið í sumar.
Dagskráin í sumar er á þessa leið:
21.
júní kl. 17 í Dómkirkjunni (HH)
29.
júní kl. 12:15 í Þjóðmenningarhúsinu
(HH)
8.
júlí kl. 16 í Gljúfrasteini (stofutónleikaröð
Gljúfrasteins)
13.
júlí kl. 12:15 á Kjarvalsstöðum (HH)
19. júlí kl. 20 í
Tjarnarsal Ráðhússins (HH)
20.
júlí kl. 12 í Ketilhúsinu á Akureyri (Listasumar á
Akureyri)
28.
júlí Loka-styrktartónleikar verkefnisins “Tónaregn í Reykjavík”
(HH)
9.
ágúst kl. 20:30 í Stykkishólmskirkju (sumartónleikaröð
Stykkishólmskirkju)
18.
ágúst Menningarnótt (HH)
21. ágúst kl.
20:30 í Sigurjónssafni (sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns
Ólafssonar)